Um okkur

Tveir meistarakokkar. Einn fiskréttur í viku.

Meistarakokkarnir á bak við Fisk dagsins eru Hákon Már Örvarsson og Stefán Viðarsson.

Kokkarnir

Hákon Már Örvarsson matreiðslumeistari
Matreiðslumeistari

Hákon Már Örvarsson

  • Bronsverðlaun í frönsku Bocuse d’Or keppninni
  • Fjölmörg verðlaun í matreiðslukeppnum hér heima og erlendis
  • Hótel Holt og Nordica
  • Stjórn Klúbbs matreiðslumeistara
Stefán Viðarsson matreiðslumeistari
Matreiðslumeistari

Stefán Viðarsson

  • Stýrði lengi öllum eldhúsum Icelandair hótelanna
  • Rekur í dag stór mötuneyti undir merkjum Réttar dagsins
  • Hótel Holt og Nordica
  • Stjórn Klúbbs matreiðslumeistara

Saga okkar

Hákon og Stefán hafa síðustu 25 ár starfað saman um skeið á Hótel Holti og Nordica, á sama tíma og þeir hafa gegnt stjórnarstörfum hjá Klúbbi matreiðslumeistara.

Þeir hafa um árabil skipað sér í fremstu röð kokka á veitingahúsum, hótelum og í laxveiðihúsum, ýmist sem starfsmenn eða meðeigendur.

Fiskur dagsins var stofnaður í september 2023.