Sjálfstætt eldhús
Hvert mötuneyti hefur sinn kokk og matseðil.
Réttur dagsins rekur mötuneyti fyrir fyrirtæki og sér um fundaveitingar. Hvert eldhús hefur sinn kokk og matseðil sem tekur mið af vinnustaðnum.
Á bak við Rétt dagsins stendur Stefán Viðarsson matreiðslumeistari, sem hefur um árabil verið í fremstu röð kokka á veitingahúsum, hótelum og í laxveiðihúsum.
Hann starfaði meðal annars á Hótel Holti og Hótel Nordica, stýrði lengi öllum eldhúsum Icelandair-hótelanna og hefur setið í stjórn Klúbbs matreiðslumeistara.
Í dag rekur Réttur dagsins mötuneyti fyrir Alvotech, Arion banka, Icelandair, JBT Marel, Sjóvá, VÍS og Össur og sér auk þess um fundaveitingar.
Hvert mötuneyti hefur sinn kokk og matseðil.
Soð, sósur og brauð eru útbúin í eldhúsinu.
Við sjáum um mönnun, innkaup, hreinlæti og eftirlit. Þið hafið einn tengilið.